Barcelona sló 74 ára met

Karlalið Barcelona í knattspyrnu sló 74 ára gamalt félagsmet í gærkvöldi þegar liðið lagði Rauðu stjörnuna að velli, 5:2, í deildarkeppni Meistaradeildar Evrópu.

featured-image

Karlalið Barcelona í knattspyrnu sló 74 ára gamalt félagsmet í gærkvöldi þegar liðið lagði Rauðu stjörnuna að velli, 5:2, í deildarkeppni Meistaradeildar Evrópu. Barcelona hefur nú skorað 55 mörk í fyrstu 16 leikjum sínum á tímabilinu og bætti þar með eigið met frá árinu 1950 um eitt mark þegar Börsungar skoruðu 54 mörk í fyrstu 16 leikjum sínum tímabilið 1950-51. Spænska stórveldið hefur því skorað að meðaltali 3,4 mörk í leik það sem af er tímabils.

Barcelona er á toppnum í spænsku 1. deildinni og í sjötta sæti í deildarkeppni Meistaradeildarinnar..